Veislu matseðlar

Veislur með eða án fullrar þjónustu í sal hjá samstarfsaðila, öðrum sölum eða í bústaðnum sem einkakokka þjónusta.

2- eða 3-rétta máltíð

Þetta er í raun eina leiðin til að bóka borð á Samúelsson og fá mat af okkar "venjulega matseðli". Þessa matseðla er hægt að bera fram í veislum í sölum í samstarfi við okkur og fleiri sali ef þeir eru með fullnægjandi eldhús.


Lágmarks pöntun er fyrir 20 manns og fjöldinn takmarkast aðeins við leyfðan fjölda í sölunum. Við gerum tilboð í hvert verkefni fyrir sig.

Skoða matseðla

Stórt Steikar hlaðborð

10.900 kr,- á mann

Okkar vinsælustu réttir frá upphafi í formi hlaðborðs.


Forrétta hlaðborð hlaðið af okkar vinsælustu köldu réttum

  • Anisgrafinn lax með gravlax sósu
  • Svartbauna grafinn og reyktur ufsi
  • Humar salat
  • Gæsaliframús með rauðlauks salsa
  • Dádýra tataki
  • Rauðbeður, gráðostur og epli
  • Kryddað ávaxta salat
  • Sætkartöflur, hnetur og döðlur
  • Blað salat og dressing


Súpa

  • Rjómalöguð og koníaksbætt villisveppa súpa


Aðalréttir

  • Grilluð Kálfa ribeye steik
  • Dijon gljáð og grillað kindafillet með kryddjurtaraspi
  • Hnetusteik Samúelssons fyrir vegana sé þess óskað
  • Bakað rótargrænmeti
  • Ristaðar kartöflur með hvítlauk og timíjan
  • Bernaise sósa
  • Rauðvínssósa


Eftirréttir

  • Brownie með hvítsúkkulaði og skyr ganache
  • Makkarónur
  • Fylltar vatndeigsbollur m
  • mini muffins


Þessa veislu er eingöngu hægt að fá afgreidda í sölum með fullnægjandi eldhúsi og aðstöðu.


Lágmarks bókun er fyrir 50 manns


Hafðu samband

Smáréttaveislur

Allir smárétta seðlar sem við bjóðum uppá eru á vefversluninni okkar, gott er að skoða þá þar og senda okkur svo fyrirspurn ef þú vilt njóta í sal.


Smelltu á hlekkinn hér að neðan og veldu svo "Veislur" tabið til að sjá úrvalið okkar.

Vefverslun veisluþjónustu

Private dining

Viltu fá matreiðslumann heim til þín til að sjá um veisluna? Hvað með barþjón? Við bjóðum uppá 3, 5 eða 8 rétta veislu í þínu eldhúsi og jafnvel út í móa!


Sendu okkur fyrirspurn og við gerum þér tilboð í verkið. Hámarks fjöldi er 25 manns fyrir einka service af fagmönnum, verðlag ræðst af fjölda gesta og hvaða matseðill er valinn.

Hafðu samband

Þjónusta

Sumir af okkar samstarfsaðilum eru með mikla þjónustu innifalda í verðinu eins og uppvask, þrif á salnum, dúka, diska, glös og áhöld og þjónustu yfir viðburðinn en aðrir ekki. Hvert tilfelli þarf að tækla fyrir sig og við hjálpum þér að ná farsælli niðurstöðu.



Öll verð eru fyrir mat, salaleiga og annað er ekki innifalið í því verði. Við erum í góðri aðstöðu til að útvega þjóna, barþjóna og flesta aðra þjónustu sem þörf er á.Stærð veislunnar takmarkast aðeins við stærð salsins sem notað er.


Stærsti salur í samstarfi við okkur rúmar um 300 manns án tilfæringa. Það er einnig hægt að búa til risa viðburðarsal við Ingólfshvoll sem rúmar um og yfir 1.000 manns í mat og / eða hvaða viðburð sem þér dettur í hug.

Share by: